Fjölskyldusmiðja
15.09.201913:00–15:00

BYGGJABORG

Fjölskyldusmiðjan Að byggja borg verður í Hönnunarsafni Íslands sunnudaginn 15. september nk. kl. 13–15. Smiðjunni verður stillt upp sem borðspili í yfirstærð þar sem þáttakendur taka þátt í að byggja upp borg. Þannig gefst innsýn í heim byggingarlistar og borgarskipulags á aðgengilegan og áhugaverðan hátt. Spilað verður eftir hnitmiðuðum leikreglum sem endurspegla einfaldaða útgáfu af samfélagi á skemmtilegan máta. Smiðjan hentar fróðleiksfúsu og forvitnu fólki á öllum aldri. Kristján Örn Kjartansson arkitekt og einn af stofnendum arkitektastofunnar Kards og Lóa Hjálmtýsdóttir, teiknari og tónlistarmaður stýra smiðjunni. Aðgangur er ókeypis.