Fjölskyldusmiðja
22.09.201913:00–14:00

BYGGJABORG

FJÖLSKYLDUSMIÐJA verður haldin sunnudaginn 22. september kl. 13–15 í Hönnunarsafni Íslands. Smiðjunni verður stillt upp sem borðspili í yfirstærð þar sem þáttakendur taka þátt í að byggja upp borg. Þannig gefst innsýn í heim byggingarlistar og borgarskipulags á aðgengilegan og áhugaverðan hátt. Spilað verður eftir leikreglum sem endurspegla einfaldaða útgáfu af samfélagi á skemmtilegan máta. Smiðjan hentar fróðleiksfúsu og forvitnu fólki á öllum aldri. Kristján Örn Kjartansson arkitekt og einn af stofnendum arkitektastofunnar KRADS og Lóa Hjálmtýsdóttir, teiknari og tónlistarmaður stýra smiðjunni