Á Safnanótt, föstudaginn 3. febrúar, opnar ný fastasýning í Hönnunarsafni Íslands.
Á sýningunni Hönnunarsafnið sem heimili má finna í kringum 200 dæmi um íslenska hönnun en safneign Hönnunarsafns Íslands telur í heild um 5000 muni frá árinu 1900 til dagsins í dag.
Sýningin er sett upp sem grunnmynd af heimili en líkt og á heimilum fólks má sjá þar hlið við hlið muni frá mismunandi tímabilum. Húsgögn, borðbúnaður, fatnaður, bækur og textíll frá ólíkum tíma koma saman og varpa ljósi á brot af því sem íslenskir hönnuðir og handverksfólk hefur skapað.

Heimilið er í sífelldri þróun. Stöðugt er verið að færa til, skipta út og breyta. Sköpun heimilis er lifandi ferli án endapunkts, en heimilið er fyrst og síðast sköpun þeirra sem þar búa. Smekkur, sem getur mótast af ýmiss konar áhrifaþáttum í lífi hvers og eins, er það sem gefur hverju og einu heimili sín sérkenni.
Í mörg horn er að líta á heimili og ýmislegt getur komið upp á. Sama má segja um uppsetningu sýningar en í lok desember lak þak í sýningarsal safnsins. Því er einungis hægt að opna hluta sýningarinnar að þessu sinni. Það er ekki öruggt að setja upp muni í stofuhluta sýningarinnar fyrr en viðgerð hefur farið fram. Stofan stendur því tóm og minnir okkur á hverfulleika lífsins og mikilvægi þess að hlúa vel að heimilum og líka safnastarfi.
Ljósmynd: Studio Fræ


Dagskrá Safnanætur í Garðabæ í heild sinni:

Aftur til Hofsstaða, Garðatorgi 7
Kl. 17:00 sýningaropnun
Margmiðlunarsýning sem spannar sögu Garðabæjar allt frá landnámi til okkar daga og tengist fornleifarannsóknum á Hofsstöðum við Kirkjulund.
Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7
Kl. 18:00-20:00
Hljóðfærasmiðja með Elínu Helenu sem leiðbeinir með notkun á endurunnu efni.
Kl. 18:00
Opnun sýningar á málverkum Sveinbjörns Steingrímssonar á vegum Grósku.
Kl. 18:30
Skólakór Sjálandsskóla syngur.
Kl. 19:00- 21:00
LJóðasjoppa Jakub Stachowiak sem semur ljóð að óskum gesta.
Kl. 21:00
Rebekka Blöndal jazzsöngkona og Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari breyta bókasafni í jazzklúbb.
Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi 1
Kl. 18:00-19:30
Hönnunarsmiðja fyrir alla fjölskylduna í Smiðjunni.
Kl. 18:30-20:00
Ada Stanczak keramikhönnuður að störfum í vinnustofunni.
Kl. 18:00 - 22:00
Sýningin Fallegustu bækur í heimi á Pallinum.
Kl. 20:00 sýningaropnun
Hönnunarsafnið sem heimili er sýning á gripum úr safneign safnsins. Skyggnast má inn í nokkur herbergi heimilisins en í stofunni munu söngkonan Jelena Ciric ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni gítarleikara og harmonikkuleikaranum Margréti Arnardóttur leika heimilislega tónlist. Vegna leka verður ekki hægt að opna sýninguna í heild sinni.
Allir viðburðir og aðgangur ókeypis.