Dagatal
DAGATAL
Hönnuðir: Hildigunnur Gunnarsdóttir& Snæfríð Þorsteins
Tíminn er huglægt fyrirbæri en um leið eitt okkar mikilvægasta mælitæki sem við notum til grundvallar á öllu lífsskeiðinu. Sjálfsagt líður tíminn mishratt og mishægt hjá okkur og tilfinning okkar til tímans er ekki
alltaf hin sama. Á Íslandi voru dagatöl þar sem þú reifst af eitt blað á hverjum degi mjög vinsæl á heimilum. Enn í dag sjást þau í húsum fólks, sérstaklega hjá eldra fólki, þar sem ný dagsetning hvers dags birtist og lækkar þá í bunkanum smátt og smátt.
Hönnuðurnir Snæfríð og Hildigunnur færðu þetta dagatal inn í nýja tíma þar sem allir dagar blasa við þér í upphafi ársins en saxast þó á þegar þú ferð að rífa þá í burtu einn af öðrum. Ævitíminn eyðist, unnið skildi aldrei meir segir í íslensku ljóði. Heilt ár virðist stuttur tími þegar allir dagar þess eru samviskusamlega númeraðir fyrir ofan skrifborðið þitt eða í eldhúsinu. Kannski virkar það hvetjandi að hafa þessa flötu mynd af tímanum fyrir framan sig en heimspekilegar vangaveltur okkar um tímann eiga þó alltaf við, ekki síst þegar við kvörtum yfir því að hann líði of hratt. Því þá er vert að staldra við og skoða þetta fyrirbæri, tímann.
Hæð: 70 cm
Breidd:65 cm
Verð: kr. 3290
CALENDAR
Designed by: Hildigunnur Gunnarsdóttir& Snæfríð Þorsteins
Time is an objective phenomenon but simultaneously one of our most important measuring device that we use as a basis for all our lives. Time probably goes by at a various pace for each of us and our sense of time is not always the same. In Iceland calenders where you would tear off one piece of paper for each day were extremely popular. They are still to be found in people’s homes today, especially with the older generation, where the new date of each day appears and the pad then gradually becomes smaller.
The designers Snæfríð and Hildigunnur brought this calender into modern times where you can see all the days at the start of the year although it will diminish once you start tearing the days off one by one. A whole year seems like a short time when every day of the year is
conscientiously numbered above your desk or in the kitchen. Perhaps, it is motivating to have this flat image of time in front of you but our philosophical speculations about time are always relevant, particularly when we complain that it goes by too fast. Then it is worthwhile to stop and explore this phenomenon.
Width: 70 cm
Height: 65 cm
Prise: kr. 3290