LIFANDI SILFRIÐ

 Lifandi silfrið- Skartgripir Ásdísar Sveinsdóttur Thoroddsen

Bókin var gefin út í tilefni sýningar Hönnunarsafns Íslands á skartgripum Ásdísar S. Thoroddsen (1920-1992). Hana prýðir fjöldi mynda af skartgripasmíð Ásdísar og texti um gullsmiðinn eftir Aðalstein Ingólfsson listfræðing auk þess sem stutt hugvekja barna Ásdísar um móður þeirra lýsir umhverfi því sem hún skapaði þeim og heimilinu með listfengi sínu og nærveru.
Bókin er 84 síður. Gefin út 2007 af Hönnunarsafni Íslands.

Verð: 1600 kr

 

HAGVIRKNI

Hagvirkni, húsbúnaður eftir íslenska myndlistarmenn 1904-2004

Bókin var gefin út í tilefni sýningar á húsbúnaði sem íslenskir og erlendir myndlistarmenn búsettir hér á landi hafa hannað og smíðað. Fjölbreytni þessara gripa er mikil, bæði hvað varðar form, efni og smíð en í bókinni eru meðal annars stólar, skápar, hillur, borð og lampar svo eitthvað sé nefnt. Stutt æviágrip er um hvern listamann og grein eftir Aðalstein Ingólfsson um þessa muni. Meðal listamanna sem eiga gripi í bókinni eru Ásgrímur Jónsson, Dieter Roth, Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, Hannes Lárusson, Jón Axel Björnsson, Magnús Pálsson, Magnús Kjartansson, Kristín Jónsdóttir, Sigurður Guðmundsson og Sigurjón Ólafsson,
Bókin er 76 síður og prýdd fjölda ljósmynda. Stutt ágrip á ensku er í bókinni. Útgefandi: Hönnunarsafn Íslands, 2004

Verð: 1500 kr

 

STÓLAR PÉTURS

STÓLAR PÉTURS - Pétur B. Lúthersson Stólahönnun í 40 ár

Pétur B. Lúthersson (f. 1936) er einn af okkar þekktustu samtímahönnuðum. Hann hefur verið afkastamikill á ferli sínum sem húsgagna- og innanhúsarkitekt og þar skapar stólahönnun hans sérstakan flokk. Bókin fjallar um stólahönnun Péturs. Hún er prýdd góðum ljósmyndum af hönnun hans og í bókinni er viðtal við hönnuðinn sem Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur tók. Formálar eru eftir Björn Bjarnason og Stefán Snæbjörnsson.
Bókin er 42 síður. Útgefin 2002 af Hönnunarsafni Íslands í tilefni sýningar á stólum Péturs.

Verð: 1600 kr

 


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli