SAGA

Árið 1998 gerðu menntamálaráðuneytið og Garðabær samkomulag um að reka í sameiningu íslenskt hönnunarsafn er safnaði og sýndi listiðnað. Aðdragandinn hafði verið allnokkur en rekja má þá formlegu umræðu sem hafði farið fram um nauðsyn á slíku safni aftur til ársins 1992 þegar félagið Form Ísland setti saman umræðuhóp með fulltrúum hönnuða, menntamálaráðuneytis, Listasafns Íslands, Þjóðminjasafns Íslands og Reykjavíkurborgar um slíkt safn. Í framhaldinu, eftir vinnu hópsins, var þeim tilmælum beint til menntamálaráðuneytis að skipa nefnd  er mæti með hvaða hætti stofna mætti safn er sinnti listiðnaði. Í byrjun árs 1997 var niðurstaða nefndarinnar sú að mikil þörf væri á safni er sinnti listhandverki og iðnhönnun.

Fyrst um sinn var safnið deild í Þjóðminjasafni Íslands en með nýjum samningi við menntamálaráðuneytið, sem undirritaður var í desember árið 2006, tók Garðabær við rekstri Hönnunarsafns Íslands og starfar safnið sem stofnun á vegum bæjarfélagsins. Samningurinn kvað einnig á um að hanna skyldi byggingu fyrir safnið og hefur safninu verið valinn staður við nýtt Garðatorg í Garðabæ. Fyrirhugað er að safnið opni í nýrri byggingu haustið 2010.

 

 


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli