Mynd með frétt30. janúar 2012

SAFNANÓTT - Föstudaginn 10. febrúar

SAFNANÓTT - Föstudagur 10. febrúar 2012 - dagskrá í Hönnunarsafni Íslands Þema kvöldsins er MAGNAÐ MYRKUR... [ nánar ]
Mynd með frétt04. janúar 2012

Verkefni Hönnunarsafns og Listaháskólans tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands 2012

Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur valið bestu verkefnin sem unnin voru á árinu 2011 fyrir framlög úr sjóðnum. Í þeim hópi er verkefni sem Arna Rún Gústafsdóttir grafískur hönnuður vann í sumar fyrir Hönnunarsafnið. ... [ nánar ]
Mynd með frétt04. janúar 2012

Gleðilegt nýtt ár

Hönnunarsafn Íslands óskar gestum og velunnurum gleðilegs árs og þakkar fyrir það liðna. Sumarið 2011 flutti safnið alla starfsemi sína yfir í húsnæði að Garðatorgii 1 og er það til mikilla bóta að hafa geymslur, skrifstofur og sýningarrými undir einu og sama þaki.... [ nánar ]
Mynd með frétt22. desember 2011

Opnunartími yfir hátíðirnar - Gleðileg jól

Aðfangadagur, 24.des. Lokað Jóladagur, 25.des. Lokað Annar í jólum, 26. des. Lokað Gamlársdagur, 31. des. Lokað Nýársdagur, 1. jan. Lokað... [ nánar ]
Mynd með frétt19. desember 2011

Jólaóróar og föndur á sýningunni HVÍT JÓL

Hönnunarsafn Íslands sýnir jólaóróa sem æfingastöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra hóf framleiðslu á er þau fögnuðu 50 ára afmæli sínu árið 2006. Það ár var ákveðið að hefja framleiðslu á jólaóróum til styrktar stöðinni sem sinnir umfangsmestu sjúkra- og iðjuþjálfun barna á landinu.... [ nánar ]
Mynd með frétt06. desember 2011

Kærleikskúlan eftir Yoko Ono og jólaóróar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra

Í Svarta sal Hönnunarsafn Íslands stendur yfir kynning á jólakúlum og jólaóróum Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur frá jólunum 2003 látið gera Kærleikskúlu úr gleri. Allur ágóði af sölu hennar rennur til starfsemi Reykjadals. ... [ nánar ]
Mynd með frétt02. desember 2011

HVÍT JÓL jólasýning safnsins og skólaheimsóknir

Í nóvember og desember hefur Hönnunarsafn Íslands boðið upp á jólasmiðjur fyrir nemendur leik-og grunnskóla í tengslum við jólasýningu safnsins „Hvít jól“. Skólabörnin hafa búið til kramarhús, músastiga, klippt jóladúka og búið til jólaskraut af ýmsu tagi. Börnin hafa ekki látið sitt eftir liggja sungið jólalög og skreytt jólatré safnsins með litríku jólaskrauti .... [ nánar ]
Mynd með frétt30. nóvember 2011

Skemmtileg hljóðfærasmiðja

Nú er lokið hljóðfærasmiðju þar sem elstu börnum leikskóla og yngstu börnum grunnskóla ásamt kennurum í Garðabæ hefur verið boðið að koma og taka þátt í listasmiðju undir leiðsögn tónlistarkennaranna Hjartar B. Hjartarsonar og Pamelu De Sensi.... [ nánar ]
Mynd með frétt29. nóvember 2011

Staða afgreiðslustjóra við safnið laus til umsóknar

Hönnunarsafn Íslands auglýsir eftir afgreiðslustjóra, í 50% starf. Leitað er að ábyrgum einstaklingi til að sjá um gæslu í sýningarrýmum og til að hafa umsjón með mótttöku safnsins og safnbúð. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á hönnunarsögu, tala góða íslensku og ensku og koma vel fyrir. ... [ nánar ]
Mynd með frétt25. nóvember 2011

Ókeypis aðgangur í Hönnunarsafnið laugardaginn 26. nóvember

Í Hönnunarsafni Íslands ríkir jólastemmning, jólavörurnar eru komnar í verslunina og í sýningarsal safnsins stendur yfir sýningin Hvít jól þar sem bæði börn og fullorðnir finna eitthvað við sitt hæfi. ... [ nánar ]
Mynd með frétt11. nóvember 2011

HVÍT JÓL, jólasýning Hönnunarsafnsins –síðasta sýningarhelgi á verkum Piu Holm textílhönnuðar.

Á jólasýningu safnsins gefur að líta eitt stórt hátíðarborð fyrir þrettán gesti þar sem áhersla er lögð á fjölbreyttan norrænan borðbúnað úr ýmsum áttum, diska, glös, hnífapör og ílát sem hönnunarsagan hefur skilgreint sem framúrskarandi hönnun.... [ nánar ]
Mynd með frétt26. október 2011

HVÍT JÓL - Jólasýning í Hönnunarsafni Íslands

Föstudaginn 28. október kl. 17 verður opnuð ný sýning í Hönnunarsafni Íslands. Að þessu sinni sýnum við fjölbreyttan norrænan borðbúnað og stóla. Við höfum leitað fanga á heimilum fólks og víðar og sett saman á skemmtilegan hátt - gamalt í bland við nýtt, stál í bland við silfur, kristal í bland við gler og kunnuglega hluti í bland við framandi. ... [ nánar ]
Mynd með frétt20. október 2011

Ruggustóll Helga Hallgrímssonar gefinn safninu

Þann 11. október síðastliðinn hélt dr. Arndís S. Árnadóttir fyrirlestur um innréttingar og húsgögn Helga Hallgrímssonar húsgagnaarkitekts. Hönnunarsafn Íslands stóð að fyrirlestrinum með styrk úr Safnasjóði í tilefni þess að Helgi hefði orðið 100 ára þann 4. nóvember næstkomandi.... [ nánar ]
Mynd með frétt14. október 2011

FYRIRLESTUR UM TÍMAMÓTAHÚS 7. ÁRATUGARINS Í GARÐABÆ

Þriðjudaginn 18. október 2011, kl. 20, flytur Pétur H. Ármannsson arkitekt fyrirlestur í Hönnunarsafni Íslands, um byggingarlist í Garðabæ. Fyrirlesturinn er fyrsti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð um Áratugi í íslenskri hönnunarsögu sem Hönnunarsafnið hyggst standa að á næstu misserum.... [ nánar ]
Mynd með frétt13. október 2011

Leiðsögn um sýninguna HLUTIRNIR OKKAR

Elísabet V. Ingvarsdóttir hönnunarfræðingur mun ganga um sýningu Hönnunarsafnsins á Hlutunum okkar með safngestum. Á sýningunni eru valdir gripir úr safneign safnsins sem margir ættu að kannast við og þekkja.... [ nánar ]
Mynd með frétt09. október 2011

Sígild húsgögn og horfnar innréttingar

Þriðjudaginn 11. október 2011, kl. 20, flytur dr. Arndís S. Árnadóttir hönnunarsagnfræðingur fyrirlestur í húsakynnum Hönnunarsafns Íslands í Garðabæ um verk Helga Hallgrímssonar (1911-2005) húsgagnaarkitekts. Helgi telst til frumherja í stétt íslenskra húsgagnaarkitekta sem sóttu nám erlendis á millistríðsárunum. Í verkum hans má greina ríkjandi hugmyndir módernismans um notagildi, efnisnotkun og stíl sem hann vísaði í sem „tímalausan“ og tengja má við nútímalega norræna hönnun eftirstríðsáranna.... [ nánar ]
Mynd með frétt06. október 2011

NÁTTÚRULEGA HAMINGJUSÖM MYNSTUR

Laugardaginn 8. október nk. kl:14:00, flytur finnski hönnuðurinn Pia Holm fyrirlestur í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ.... [ nánar ]
Mynd með frétt22. september 2011

Sunnudagsleiðsögn um sýninguna HLUTIRNIR OKKAR

Elísabet V. Ingvarsdóttir hönnunarsagnfræðingur mun ganga um sýningu Hönnunarsafnsins á Hlutunum okkar með safngestum. Á sýningunni eru valdir gripir úr safneign safnsins sem margir ættu að kannast við og þekkja, án þess þó að hafa velt því fyrir sér hver okkar hönnunarsaga sé. ... [ nánar ]
Mynd með frétt14. september 2011

Fyrirlestur og vinnusmiðja með Píu Holm

Þann 7. október nk. standa Hönnunarsafn Íslands og fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar fyrir námsstefnu, með finnska hönnuðinum Píu Holm. Pía vinnur mynsturhönnun í textíl og nefnir hún námsstefnuna NATURALLY HAPPY PATTERNS eða Náttúrulega hamingjusöm mynstur.... [ nánar ]
Mynd með frétt02. september 2011

Samkeppnisgögn arkitekta verða varðveitt í Hönnunarsafni Íslands

Arkitektafélag Íslands og Hönnunarsafn Íslands hafa undirritað samning um að safnið varðveiti samkeppnisgögn úr samkeppnum sem haldnar eru eftir reglum Arkitektafélags Íslands. ... [ nánar ]
Mynd með frétt25. ágúst 2011

Námsstefna í nýsköpun og frumkvöðlamennt

Þann 16. september n.k. standa fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands fyrir námsstefnu í nýsköpun og frumkvöðlamennt fyrir leik- og grunnskólakennara í Garðabæ. Námsstefnan verður haldin í smiðju í Hönnunarsafni Íslands.... [ nánar ]
21. júlí 2011

Íslenski safnadagurinn

Sunnudaginn 10. júlí var Hönnunarsafnið með ratleik í tilefni af íslenska safnadeginum. Þátttaka var mjög góð og nú hefur verið dregið úr réttum lausnum.... [ nánar ]
06. júlí 2011

Íslenski safnadagurinn

Sunnudaginn 10. júlí er íslenski safnadagurinn en þá bjóða söfnin upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Í Hönnunarsafni Íslands verður ratleikur um yfirstandandi sýningu safnsins og tilboð í safnbúð á bókum ásamt því að íslenska skyrkonfektið frá Erpsstöðum verður til sölu.... [ nánar ]
Mynd með frétt10. júní 2011

Hlutirnir okkar í Hönnunarsafninu

Sýningin Hlutirnir okkar var opnuð í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ fimmtudaginn 9. júní. Á sýningunni er fjölbreytt úrval af safngripum í eigu safnsins. Í tilefni af opnun sýningarinnar fékk safnið að gjöf verðlaunalampann Heklu frá 1962 eftir Jón Ólafsson og Pétur B. Lúthersson húsgagnahönnuði.... [ nánar ]
Mynd með frétt30. maí 2011

Hlutirnir okkar – safneign Hönnunarsafns Íslands

Ný sýning verður opnuð fimmtudaginn 9. júní kl. 17 Frá stofnun Hönnunarsafns Íslands árið 1998 hafa safninu borist margir prýðilegir gripir sem varpa ágætu ljósi á íslenska og erlenda hönnun. Safneignin endurspeglar nú þegar þá miklu fjölbreytni sem hönnunarsagan samanstendur af.... [ nánar ]
Mynd með frétt26. maí 2011

Sýningum lýkur í Hönnunarsafni Íslands um helgina - leiðsagnir

Sunnudaginn 29. maí lýkur sýningu Hönnunarsafns Íslands á húsgögnum Gunnars Magnússonar húsgagnahönnuðar. Sama dag lýkur sýningu á verkum Hrafnhildar Arnardóttur, Á gráu svæði. Sýningarnar höfða til fjölbreytts hóps unnenda íslenskrar hönnunar og menningarsögu og hafa verið mjög vel sóttar. ... [ nánar ]
Mynd með frétt09. maí 2011

Forsetafrú Slóveníu heimsótti Hönnunarsafnið

Barbara Miklič Türk, forsetafrú Slóveníu, heimsótti Hönnunarsafn Íslands í Garðabæ þriðjudaginn 3. maí sl. í fylgd með forsetafrú Íslands Dorrit Moussaieff. Heimsóknin var liður í dagskrá í opinberri heimsókn forseta Slóveníu og föruneytis dagana 3.-5. maí. ... [ nánar ]
Mynd með frétt19. apríl 2011

Leiðsagnir á Sumardaginn fyrsta

Fimmtudaginn 21. apríl kl. 14 mun Harpa Þórsdóttir forstöðumaður ganga um sýningarnar í Hönnunarsafni Íslands með gestum. Sýningin á verkum Gunnars Magnússonar varpar ljósi á þá framúrskarandi hönnun sem við Íslendingar eigum og þann húsgagnaiðnað sem var ríkjandi á árum áður, en Gunnar er einn okkar afkastamesti innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sýningin Á gráu svæði er á verkum Hrafnhildar Arnardóttur sem hún hefur unnið í samstarfi við listamenn, stílista og hönnuði á síðustu tíu árum en Hrafnhildur hefur sem myndlistarmaður fært listsköpun sína inn á svið hönnunar með eftirtektarverðum hætti. ... [ nánar ]
Mynd með frétt19. apríl 2011

Opnunartími um páska - Opening hours during Easter Holidays

Safnið verður opið sem hér segir... [ nánar ]
Mynd með frétt08. apríl 2011

Staða fulltrúa við safnið laus til umsóknar

Hönnunarsafn Íslands auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf. Starfssvið Óskað er eftir starfsmanni í 70% stöðugildi. Starfið felst annars vegar í vinnu við skráningu gagna og muna í safneign og hins vegar að miðlun og verkefnum sem tengjast sýningum og verkefnum safnsins. Viðkomandi mun starfa náið með forstöðumanni að uppbyggingu safnsins á næstu árum. ... [ nánar ]
Mynd með frétt31. mars 2011

Hádegisleiðsögn á föstudag

Föstudaginn 1. apríl kl. 12:15 verður hádegisleiðsögn um nýjustu sýningu safnsins Á Gráu svæði. Hrafnhildur Arnardóttir og Edda Guðmundsdóttir munu leiða gesti safnsins um sýninguna ... [ nánar ]
Mynd með frétt15. mars 2011

HönnunarMars í Hönnunarsafninu

Hönnunarsafn Íslands sýnir verk Hrafnhildar Arnardóttur eða Shoplifter á HönnunarMars, sem hefst fimmtudaginn 24. mars næstkomandi. Hrafnhildur er myndlistarmaður og hefur búið í New York síðustu 17 árin þar sem hún hefur skapað sér nafn fyrir innsetningar sínar úr hári og ýmsa fylgihluti og fatnað sem hún hefur hannað í samstarfi við listamenn, hönnuði og stílista.... [ nánar ]
Mynd með frétt08. mars 2011

Leiðsögn um sýninguna Samkeppni um húsgögn í Hörpu

Fimmtudaginn 10. mars kl. 12:15 verður hádegisleiðsögn í Hönnunarsafni Íslands um sýningu safnsins á þeim tillögum sem bárust í hönnunarsamkeppni um húsgögn í Hörpu. Höfundar verðlauna- og viðurkenningatillagna segja frá tillögum sínum og rætt verður um hlutverk og mikilvægi slíkra samkeppna fyrir íslenska hönnuði.... [ nánar ]
Mynd með frétt01. mars 2011

Undirritun samninga í Hönnunarsafni Íslands

Forsvarsmenn Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúss, undirrituðu kaup- og framleiðslusamninga við framleiðendur og söluaðila íslenskra húsgagna, í Hönnunarsafni Íslands föstudaginn 18. febrúar sl.... [ nánar ]
Mynd með frétt22. febrúar 2011

Rafskinna til safnsins

Nokkrar teikningar sem gerðar voru fyrir dagblaðið Vísi til auglýsingar í Rafskinnu voru afhentar Hönnunarsafni Íslands á dögunum. Það voru þeir Sveinn Eyjólfsson og Hörður Einarsson sem færðu safninu gjöfina en auglýsingaspjöldin voru teiknuð á nokkurra ára bili fyrir Vísi.... [ nánar ]
Mynd með frétt15. febrúar 2011

Góð aðsókn á Safnanótt

Föstudagskvöldið 11. febrúar sl. var haldin Safnanótt á höfuðborgarsvæðinu. Um 30 söfn á höfuðborgarsvæðinu voru með opið frá 19-24 þetta kvöld og einnig var í boði dagskrá á laugardeginum og sunnudeginum í tilefni Safnanætur. ... [ nánar ]
Mynd með frétt02. febrúar 2011

Ný sýning verður opnuð á Safnanótt, 11. febrúar

Næsta sýning í Hönnunarsafni Íslands er á húsgögnum Gunnars Magnússonar fyrir heimili. Gunnar fæddist á Ólafsfirði árið 1933 og er menntaður húsgagnahönnuður frá Kaupmannahöfn. Hann er einn afkastamesti hönnuður okkar og mörg fyrirtæki hafa framleitt hluti hans. ... [ nánar ]
Mynd með frétt26. janúar 2011

SIGGA Í SAFNINU Í HÁDEGINU Á FÖSTUDAG!

Sigga Heimis gengur um sýninguna og segir frá helstu verkum sínum í léttu spjalli við gesti, föstudaginn 28. janúar, kl. 12:15-13. ... [ nánar ]
Mynd með frétt26. janúar 2011

SÍÐASTA SÝNINGARHELGI

Sigga Heimis (11.9.2010 – 30.1.2011) Sýningu Hönnunarsafnsins á verkum Siggu Heimis iðnhönnuðar lýkur nú á sunnudaginn. Sigga hefur á síðustu árum átt í samstarfi við heimsþekkt framleiðslufyrirtæki á sviði hönnunar. ... [ nánar ]
Mynd með frétt12. janúar 2011

HÖNNUNARSAMKEPPNI UM HÚSGÖGN Í HÖRPU

Sýning á tillögum sem bárust í hönnunarsamkeppni um húsgögn í Hörpu verður opnuð nk. föstudag kl. 17 og stendur til 6. mars 2011. Síðastliðið sumar var efnt til hönnunarsamkeppni um tillögur að húsgögnum í almenningsrými í Hörpu, Tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík. Samkeppnin var opin íslenskum hönnuðum og arkitektum og var haldin í samstarfi við Hönnunarmiðstöð. ... [ nánar ]
Mynd með frétt07. janúar 2011

SÝNINGARSTJÓRI SPJALLAR VIÐ SIGGU HEIMIS

Sunnudaginn 9. janúar kl 14 mun Sigga Heimis iðnhönnuður ganga um sýninguna á verkum sínum í Hönnunarsafninu í fylgd Árdísar Olgeirsdóttur sýningarstjóra. Þær munu spjalla saman um verk Siggu og velta upp ýmsum spurningum um ábyrga umhverfisvitund í hönnun og framleiðslu.... [ nánar ]
Mynd með frétt04. janúar 2011

Gleðilegt nýtt ár

Starfsfólk Hönnunarsafns Íslands óskar öllum gleðilegs nýs árs og sendir velunnurum safnsins, samstarfsaðilum þess og gestum kveðju með þökk fyrir viðburðarríkt liðið ár. Framundan í safninu eru ýmis verkefni og verður hér tæpt á nokkrum þeirra. ... [ nánar ]
Mynd með frétt17. desember 2010

Barnasmiðja og skólaheimsóknir

Nú í desembermánuði hafa nemendur í leik- og grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu komið í heimsókn á Hönnunarsafn Íslands og í Barnasmiðju. Nemendurnir hafa fengið leiðsögn um sýningu Siggu Heimis sem er aðalsýning safnsins um þessar mundir en sýningunni lýkur í janúar.... [ nánar ]
Mynd með frétt07. desember 2010

Sænska hönnunarteymið Front hlýtur Södebergverðlaunin árið 2010

Nú nýverið voru hin virtu hönnunarverðlaun Torsten och Wanja Söderbergspris veitt sænska hönnunarteyminu Front. Verðlaunaféð er ein milljón sænskar krónur, eða rúmlega sextán og hálf milljón íslenskar krónur og eru þetta hæstu peningaverðlaunin sem veitt eru á sviði hönnunar og listhönnunar í heiminum í dag. ... [ nánar ]
Mynd með frétt02. desember 2010

FYRIRLESTUR Á AÐVENTU

Elísabet V. Ingvarsdóttir hönnunarsagnfræðingur heldur fyrirlestur á annan í aðventu, sunnudaginn 5. desember í Hönnunarsafni Íslands. kl. 14:00... [ nánar ]
Mynd með frétt30. nóvember 2010

LEIÐSÖGN OG BARNASMIÐJA FYRIR LEIKSKÓLAHÓPA Í GARÐABÆ FRAM AÐ JÓLUM

Hönnunarsafn Íslands býður elsta árgangi leikskólabarna í Garðabæ sérstaklega velkomna í Hönnunarsafnið. Í boði er stutt leiðsögn og föndur fyrir jólin í barnasmiðju þar sem föndruð verður ein jólakúla eða smá skraut. ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. nóvember 2010

ÁTTU HÚSGÖGN EFTIR GUNNAR EÐA MYNDIR AF VERKUM HANS?

Þeir sem eiga húsgögn eða innréttingar eftir Gunnar Magnússon húsgagnahönnuð eru beðnir um að hafa samband við safnið, honnunarsafn@honnunarsafn.is eða í síma 512 1526.... [ nánar ]
Mynd með frétt23. nóvember 2010

NÆSTA SÝNING: GUNNAR MAGNÚSSON HÚSGAGNAHÖNNUÐUR

Hönnunarsafn Íslands undirbýr sýningu á verkum Gunnars Magnússonar húsgagnahönnuðar. Sýningin verður opnuð á Safnanótt, þann 11. febrúar næstkomandi. Hér er um að ræða fyrstu yfirlitssýningu safnsins á íslenskum húsgagnahönnuði og hófst undirbúningurinn á sýningunni snemma á þessu ári. ... [ nánar ]
Mynd með frétt19. október 2010

AÐ HANNA Á HEIMSVÍSU OG FJÖLDAFRAMLEIÐA Á UMHVERFISVÆNAN HÁTT

Þann 5. og 12. nóvember nk. standa Hönnunarsafn Íslands og fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar fyrir námsstefnu, þar sem viðfangsefnið verður “Að hanna á umhverfisvænan hátt, endurnýting og endurvinnsla”. Námsstefnan er í tengslum við sýningu Hönnunarsafns Íslands á verkum Siggu Heimis iðnhönnuðar. ... [ nánar ]
Mynd með frétt14. október 2010

Leiðsögn um sýningu Siggu Heimis sunnudaginn 17. október, kl. 14.

Árdís Olgeirsdóttir sýningarstjóri verður með leiðsögn sunnudaginn 17. október, kl. 14. Á sýningunni eru hlutir eftir Siggu Heimis frá upphafi ferils hennar en einnig það allra nýjasta sem hún hefur hannað fyrir söfn og fyrirtæki.... [ nánar ]
Mynd með frétt30. september 2010

Leiðsögn á sunnudaginn kl. 14

Harpa Þórsdóttir safnstjóri verður með leiðsögn um sýningar safnsins sunnudaginn 3. október, kl. 14. Gengið verður um sýningu á verkum Siggu Heimis sem var opnuð nýlega í safninu. ... [ nánar ]
Mynd með frétt10. september 2010

Sýning á verkum Siggu Heimis

Helgina 11-12. september opnar sýning á verkum Siggu Heimis í Hönnunarsafni Íslands... [ nánar ]
Mynd með frétt25. ágúst 2010

Næsta sýning Hönnunarsafnsins - Sigga Heimis

Sumarsýningu safnsins, „Úr hafi til hönnunar“ lýkur sunnudaginn 5. september. Undirbúningur næstu sérsýningar safnsins er á lokastigi en það verður sýning á verkum Sigríðar Heimisdóttur iðnhönnuðar. ... [ nánar ]
Mynd með frétt17. ágúst 2010

Góð aðsókn í sumar

Góð aðsókn hefur verið í Hönnunarsafnið það sem af er sumri. Töluverður fjöldi erlendra ferðamanna hefur lagt leið sína í safnið og einnig hafa Íslendingar verið duglegir að koma og skoða.... [ nánar ]
Mynd með frétt08. júlí 2010

Leiðsögn kl:15 á íslenska safnadeginum

Á íslenska safnadeginum verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn um sýningu safnsins ,,Úr hafi til hönnunar". Leiðsögnin hefst kl. 15 og er í umsjón Árdísar Olgeirsdóttir fræðslufulltrúa. Í leiðsögninni verður varpað ljósi á afar sérstakt hráefni sem unnið er á Íslandi, fiskleðrið, og notkun þess hjá fjölda hönnuða víða um heim á síðustu átta árum. ... [ nánar ]
Mynd með frétt11. júní 2010

Forsetafrú Eistlands heimsótti Hönnunarsafnið

Frú Evelin Ilves forsetafrú Eistlands heimsótti í dag Hönnunarsafn Íslands á Garðatorgi ásamt frú Dorrit Moussaieff forsetafrú. Þær skoðuðu ásamt fylgdarliði hin nýju húsakynni safnsins í fylgd Hörpu Þórsdóttur forstöðumanns og gengið var um sýninguna „Úr hafi til hönnunar" undir leiðsögn Hörpu. ... [ nánar ]
Mynd með frétt07. júní 2010

Verslunin Kraum í Hönnunarsafni Íslands

Verslunin KRAUM var opnuð í anddyri safnsins þegar safnið flutti starfsemina í sitt nýja húsnæði við Garðatorg. KRAUM selur eingöngu íslenska hönnunarvöru og er þetta fjórða verslunin sem opnar á höfuðborgarsvæðinu. ... [ nánar ]
Mynd með frétt29. maí 2010

Velkomin í Hönnunarsafnið

Hönnunarsafn Íslands var opnað formlega fimmtudaginn 27. maí að Garðatorgi 1. Um leið var opnuð fyrsta sýning þess í nýju húsnæði sem kallast "Úr hafi til hönnunar". Leiðsagnir á sunnudag 30. maí,um sýningar safnsins kl. 13:30 og 15:30.... [ nánar ]
Mynd með frétt25. maí 2010

Oddi styrkir Hönnunarsafn Íslands

Prentsmiðjan Oddi styrkir sumarsýningu Hönnunarsafns Íslands, Úr hafi til hönnunar af rausnarskap með stöplunum sem eru notaðir fyrir nær alla sýningargripina. Stöplarnir eru samvinna fyrirtækisins og hönnuðarins Sruli Recht, en Sruli var fenginn til að hanna sýningu safnsins.... [ nánar ]
Mynd með frétt20. maí 2010

Úr hafi til hönnunar, 27.5. - 5.9. 2010

Úr hafi til hönnunar Hönnunarsafn Íslands verður opnað að Garðatorgi 1, í Garðabæ þann 27. maí, með sýningu sem ber heitið “Úr hafi til hönnunar”. Á sýningunni gefst kostur á að skoða fjölbreytt úrval gripa úr roði og fiskleðri eftir íslenska og erlenda hönnuði. Að auki verður til sýnis úrval úr safneign sem varpar ljósi á söfnunarsvið safnsins. Frá og með 28. maí verður svo safnið opið almenningi, alla daga nema mánudaga kl. 12-17. ... [ nánar ]
Mynd með frétt19. maí 2010

Merki Hönnunarsafns Íslands

Merki Hönnunarsafns Íslands er hannað af Ámunda Sigurðssyni, grafískum hönnuði. Það var tekið í notkun í maí 2010. Áhersla var lögð á að draga fram táknræna mynd um safnið. Þá er annars vegar átt við það hlutverk sem safnið hefur, að safna munum frá ólíkum tímabilum og varðveita fyrir komandi kynslóðir, og hins vegar að hlutgera í merkinu ákveðna mynd af húsgagni eða grunnformi sem hönnun byggir á. ... [ nánar ]
Mynd með frétt16. apríl 2010

Samtal við Gunnar Magnússon hönnuð

Næstkomandi sunnudag ræðir Harpa Þórsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands við hönnuðinn Gunnar Magnússon í tengslum við sýninguna Í barnastærðum í Hafnarborg.... [ nánar ]
Mynd með frétt30. mars 2010

Framkvæmdir hafnar á Garðatorgi

Í sumar mun Hönnunarsafn Íslands opna í endurbættu húsnæði að Garðatorgi 1 og halda framvegis reglubundnar sýningar á íslenskri og erlendri hönnun. ... [ nánar ]
Mynd með frétt20. mars 2010

Spjall við frumkvöðla í íslenskri húsgagnahönnun á Höfðatorgi

Á sunnudaginn kemur, 21. mars kl. 16, mun Harpa Þórsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands spjalla við þá frumkvöðla íslenskrar húsgagnahönnunar sem eiga hluti á sýningunni Reykjavík Rewind sem nú stendur yfir á Hönnunarmars á Höfðatúni 2, Höfðatorgi.... [ nánar ]
Mynd með frétt17. mars 2010

Reykjavík Rewind. Húsgagnasýning á Höfðatorgi 18. - 21.03

Verk frumkvöðla á sviði íslenskrar hönnunar verða á sýningu á Höfðatorgi.... [ nánar ]
Mynd með frétt09. mars 2010

Blýanturinn

AW Faber Mark. Saga af hönnun og nýsköpun Árið er 1565 á sólríkum degi í Cumberland hlíðum á vesturströnd Bretlandseyja rétt við skosku landamærin. Hópur bænda hafði stritað allan daginn í sólinni við að fella og rífa upp með rótum tré sem stóðu í vegi fyrir plógum sem ryðja áttu nýtt land til ræktunar. Þegar trén voru fallin tóku vinnumenn eftir svörtu límkenndu efni sem lá í trjárótunum. ... [ nánar ]
Mynd með frétt15. febrúar 2010

Plakatsafnið

Söfnunarsvið Hönnunarsafns Íslands er stórt. Við söfnum til að mynda plakötum sem hafa verið prentuð í ýmsum tilgangi hér á landi. ... [ nánar ]
Mynd með frétt12. febrúar 2010

Tree Coat Hangers

Hönnunarsafni Íslands barst nýverið vegleg gjöf frá sænska húsgagnaframleiðandanum Swedese Möbler, þrjú fatahengi, eftir hönnuðina Katrínu Ólínu Pétursdóttur (f. 1967) og Michael Young (f. 1966)... [ nánar ]
Mynd með frétt21. desember 2009

Fyrstu eintökin af afmælisútgáfu Skötunnar afhent

Hönnunarsafn Íslands selur afmælisútgáfu hins þekkta stóls Halldórs Hjálmarssonar húsgagnahönnuðar, Skötuna. Stóllinn var teiknaður fyrir 50 árum og seldist í miklu upplagi á árum áður. Heiti stólsins er vísun í skötulagað form hans og er afmælisútgáfan úr tekki, eik og beyki og fætur úr nikkelhúðuðu járni líkt og frumútgáfa stólsins var.... [ nánar ]
Mynd með frétt09. desember 2009

Sköpun úr verðlausum efnum

Í september síðastliðnum var haldin námstefna fyrir leik- og grunnskólakennara um leikfangagerð úr verðlausum efnum á vegum Hönnunarsafns Íslands og Hafnarborgar, menningar- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar. IKEA og SORPA styrktu verkefnið. ... [ nánar ]
Mynd með frétt26. nóvember 2009

Harri Koskinen hlýtur Södebergverðlaunin

Harri Koskinen hlýtur Södebergverðlaunin Hin virtu verðlaun, Torsten och Wanja Söderbergspris, voru veitt finnska hönnuðinum Harri Koskinen í Gautaborg nú í nóvember. Verðlaunin eru veitt á sviði hönnunar eða listhandverks og er verðlaunaféð, ein milljón sænskar krónur, hæstu peningaverðlaun sem veitt eru einstökum hönnuði eða hönnunarteymi.... [ nánar ]
Mynd með frétt12. október 2009

120 manns komu í leiðsögn

Gríðarlegur fjöldi fólks kom á leiðsögn Arndísar S. Árnadóttur á sunnudaginn um íslenska húsgagnagerð á 20. öld. Fullt var út úr dyrum í anddyri safnsins þegar leiðsögnin hófst og áhugasamir gestir fylgdu Arndísi eftir inn í húsgagnageymslu safnsins sem opin hefur verið almenningi í sumar. ... [ nánar ]
Mynd með frétt08. október 2009

Leynast íslensk húsgögn í geymslunni þinni?

Íslensk húsgagnaframleiðsla stóð með miklum blóma á tímabilinu 1950-1970 og víða leynast enn húsgögn frá þeim tíma á íslenskum heimilum og stofnunum. Í leiðsögn um geymslusýningu Hönnunarsafnsins mun Arndís S. Árnadóttir hönnunarsagnfræðingur skyggnast um og greina frá helstu áföngum í sögu íslenskrar húsgagnasmíði og hönnunar á síðustu öld og tengja við gripi safnsins.... [ nánar ]
Mynd með frétt16. september 2009

Námsstefna um leik- og leikfangagerð

Hönnunarsafn Íslands kemur að skipulagi námsstefnu um leik- og leikfangagerð í samvinnu við lista- og menningarmiðstöðina Hafnarborg í Hafnarfirði og skólaskrifstofur Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Kennurum í skapandi greinum og nýsköpun á leik- og grunnskólastigi á höfuðborgarsvæðinu er boðið að sækja stefnuna sem stendur yfir föstudaginn 18. september næstkomandi, í húsi gamla Hagkaups við Garðatorg en safnið mun flytja í hluta þess húsnæðis um næstu áramót. Meginþema námsstefnunnar er endurnotkun efnis með það í huga að skapa úr því leikföng.... [ nánar ]
Mynd með frétt24. júlí 2009

Námsstefna um leik og leikfangagerð

Föstudaginn 18. september næstkomandi mun professor Sudarshan KHANNA halda fyrirlestur um leik og leikfangagerð... [ nánar ]
Mynd með frétt15. júní 2009

Úrval gripa úr safneign Hönnunarsafns Íslands

Úrval íslenskrar hönnunar frá síðustu árum er til sýnis í safnhúsi Hönnunarsafns Íslands að Lyngási í Garðabæ. Á sýningunni má sjá þverskurð af mismunandi tegund hönnunar sem safnið safnar: Listhönnun, vöruhönnnun, húsgagnahönnun og grafískri hönnun. ... [ nánar ]
Mynd með frétt12. júní 2009

... [ nánar ]
Mynd með frétt20. maí 2009

FLORA ISLANDICA FÆRÐ HÖNNUNARSAFNI ÍSLANDS AÐ GJÖF

Fulltrúar frá útgáfufyrirtækinu Crymogea, Kristján B. Jónasson bókaútgefandi og Helga D. Björgvinsdóttir færðu Hönnunarsafni Íslands bókina FLora Islandica að gjöf þann 13. maí síðastliðinn. ... [ nánar ]
Mynd með frétt05. maí 2009

Handprjónaðar ullarflíkur eftir Huldu Jósefsdóttur í Hönnunarsafn

Hulda Jósefsdóttir listhönnuður færði Hönnunarsafni Íslands veglega gjöf á dögunum. Um var að ræða handprjónaðar flíkur hannaðar af Huldu sem sýna þversnið af sköpunarverki hennar en flíkurnar sem Hulda gaf safninu voru til sýnis á 35 ára afmælissýningu Textílfélags Íslands, Þverskurður í Gerðarsafni fyrr á árinu. Að auki færði hún safninu prufur sem sýna æði fjölbreyttar prjónaaðferðir sem Hulda er kunn fyrir.... [ nánar ]
Mynd með frétt30. mars 2009

OPNAR GEYMSLUR

Fjöldi fólks lagði leið sína um helgina þegar safnið opnaði geymslur sínar fyrir almenningi. Gengið var um eina af húsgagnageymslum safnsins og sagt frá því sem fyrir augu bar.... [ nánar ]
Mynd með frétt30. mars 2009

Erindi um húsgögn Sveins Kjarval

Síðastliðin laugardag á HönnunarMars hélt Arndís Árnadóttir erindi um húsgögn Sveins Kjarvals í Hönnunarsafninu og tengdi þau við samtíma þróun í húsgagnasögu nágrannalandanna. ... [ nánar ]
Mynd með frétt21. mars 2009

ERINDI UM SVEIN KJARVAL - Hönnunarmars

Laugardaginn 28. mars kl. 15 mun Arndís S. Árnadóttir listfræðingur flytja erindi og segja frá húsgögnum Sveins Kjarvals (1919-1981) í safnhúsi Hönnunarsafsins. ... [ nánar ]
Mynd með frétt21. mars 2009

HÖNNUNARMARS - OPNAR GEYMSLUR

Á Hönnunardögum "HönnunarMars" verður stór hluti safneignar Hönnunarsafns Íslands til sýnis í austurhluta safnsins að Lyngási 7-9. en þetta er í fyrsta sinn sem almenningi gefst kostur á að skoða geymslur og gripi undir leiðsögn starfsfólks. ... [ nánar ]
Mynd með frétt27. febrúar 2009

Stofuhúsgögn úr smiðju bræðranna Jóns og Guðmundar Benediktssona

Nýlega barst Hönnunarsafninu að gjöf stofuhúsgögn sem smíðuð voru á húsgagnaverkstæði bræðranna Jóns og Guðmundar Benediktssona á Laufásvegi 18 a á sjötta áratug síðustu aldar. ... [ nánar ]
Mynd með frétt18. febrúar 2009

Katrín Ólína Pétursdóttir hlýtur verðlaun í Stokkhólmi

Katrín Ólína Pétursdóttir hlaut nýverið Forum Aid verðlaunin í Stokkhólmi fyrir Cristal Bar í Hong Kong. Verðlaunin voru veitt í flokki innanhússhönnunar, en verkefninu er hægt að lýsa sem þrívíðri hönnun á tvívíðum fleti í þrívíðu rúmi. ... [ nánar ]
Mynd með frétt17. febrúar 2009

Félagsmenn í félagi húsgagna- og innanhússhönnuða (FHI) heimsóttu geymslur Hönnunarsafnsins

Félagsmenn í félagi húsgagna- og innanhússhönnuða (FHI) heimsóttu Hönnunarsafnið í síðustu viku. Fjöldi félagsmanna nýtti sér tækifærið sem bauðst til að ganga um safnhúsið að Lyngási og skoða safneignina.... [ nánar ]
Mynd með frétt10. febrúar 2009

Nemendur Sjálandsskóla skoða stóla

Nemendur úr áttunda bekk Sjálandsskóla komu á dögunum í heimsókn í geymslur Hönnunarsafnsins og veltu fyrir sér þeirri miklu hönnunarvinnu sem liggur að baki hverjum stól.... [ nánar ]
Mynd með frétt27. janúar 2009

Leiðsögn um sýninguna á íslensku jólaskeiðinni

Sunnudaginn 1. febrúar næstkomandi verður Harpa Þórsdóttir forstöðumaður safnsins með stutta leiðsögn um íslensku jólaskeiðina. Leiðsögnin hefst kl. 14:30.... [ nánar ]
Mynd með frétt08. janúar 2009

IKEA og Hönnunarsafn Íslands veittu Hofsstaðaskóla styrk í desember

IKEA og Hönnunarsafn Íslands veittu Hofsstaðaskóla styrk í desember sl. til að styðja við það skapandi starf sem þegar er unnið í skólanum.... [ nánar ]
Mynd með frétt07. janúar 2009

Sýningarlok nálgast á íslensku Jólaskeiðinni

Sunnudaginn 1. febrúar lýkur sýningu á íslensku jólaskeiðinni í sýningasal safnsins við Garðatorg. Sýningin hefur hlotið góðar viðtökur og dregið að sér fjölda sýningargesta. ... [ nánar ]
05. janúar 2009

Gleðilegt ár

Við óskum landsmönnum gleðilegs árs og þökkum góð samskipti á liðnu ári. ... [ nánar ]
Mynd með frétt16. desember 2008

Notaleg stund á sýningu Hönnunarsafnsins

Hönnunarsafn Íslands tók á móti Kvenfélagi Garðabæjar og Inner Wheel konum í Garðabæ í síðustu viku. ... [ nánar ]
Mynd með frétt11. desember 2008

Leikskólinn Kirkjuból heimsótti safnið

Græni hópur úr leikskólanum Kirkjubóli heimsótti jólasýningu safnsins.... [ nánar ]
Mynd með frétt10. desember 2008

Villa-traktor gefinn Hönnunarsafni Íslands

Í tilefni þess að Manfreð Vilhjálmsson arkitekt varð áttræður á árinu ákvað Eyjólfur Pálsson í Epal ásamt nokkrum vinum Manfreðs að láta smíða nokkra tölusetta leikfangatraktora sem Manfreð hannaði og smíðaði árið 1962.... [ nánar ]
Mynd með frétt25. nóvember 2008

JÓLASKEIÐIN

Vinsælasti söfnunargripurinn á íslenskum heimilum? Í sýningasal Hönnunarsafns Íslands stendur yfir sýning sem ber heitið Jólaskeiðin, íslensk hönnun og smíði 1946-2008 og sýnir jólaskeiðar sem hafa verið smíðaðar hér á landi.... [ nánar ]
Mynd með frétt10. nóvember 2008

Söderbergsverðlaunin 2008

Steinunn Sigurðardóttir hlýtur ein stærstu verðlaun sem veitt eru á sviði hönnunar og um leið opnaði sýning á vetrarlínu hennar undir merkinu STEiNUNN í helsta hönnunarsafni Svía Röhsska... [ nánar ]
Mynd með frétt05. nóvember 2008

Næsta sýning

Annan sunnudag í aðventu 7. desember kl. 13:30 flytur Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafnsins, erindið Íslenska jólaskeiðin, saga, stíll og hefðir, í Garðabergi við hliðina á sýningarsal Hönnunarsafnsins. ... [ nánar ]
20. október 2008

Leitum að gömlum jólaskeiðum!

Vegna sýningar Hönnunarsafnsins á íslensku jólaskeiðinni leitar safnið að skeiðum... [ nánar ]
Mynd með frétt13. október 2008

Jólasýning

Laugardaginn 15. nóvember næstkomandi opnar jólasýning Hönnunarsafns Íslands. ... [ nánar ]

Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli