frétt
Næsta sýning Hönnunarsafnsins - Sigga Heimis
Sumarsýningu safnsins, „Úr hafi til hönnunar“ lýkur sunnudaginn 5. september. Undirbúningur næstu sérsýningar safnsins er á lokastigi en það verður sýning á verkum Sigríðar Heimisdóttur iðnhönnuðar.
Sigga Heimis er fædd árið 1970 og hefur frá því að hún útskrifaðist frá Istituto Europeo di Design og Domus Academy í Mílanó unnið ólík verkefni fyrir fjölda framleiðenda. Hún var ráðin hönnuður hjá IKEA í upphafi þessa áratugar og þar kynntist hún þeirri hugmyndavinnu og aðferðarfræði sem þessi gríðarstóri framleiðandi á heimsmarkaði hefur skapað sér. Í upphafi árs 2008 var Sigga ráðin hönnunarstjóri hjá danska húsgagnaframleiðandanum Fritz Hansen og vann þar með fjölda hönnuða, meðal annars við endurhugsun og endurnýjun húsgagna; merkisberum danskrar húsgagnahönnunar á 20. öld. Sigga hefur að auki starfað með fjölda erlendra háskóla víða um heim og unnið verkefni fyrir Vitra hönnunarsafnið í Þýskalandi og Corning glerlistasafnið í New York ásamt því að hanna í samstarfi við íslenska framleiðendur.
Það er ferskleiki ríkjandi í því sem Sigga hefur hannað. Hún hefur valið ólíkan efnivið í hlutina sína og velt fyrir sér formi og notagildi með ábyrgri umhverfisvitund í huga. Sigga hefur sótt innblástur heim til Íslands í mörgum verkefnum sínum fyrir hluti sem hafa verið fjöldaframleiddir svo árum skiptir og finnast á heimilum og skrifstofum víða um heim!
Það er Hönnunarsafni Íslands mikill fengur að fá að sýna úrval þess sem Sigga hefur unnið að á síðustu fimmtán árum. Sýningin verður opnuð formlega laugardaginn 11. september næstkomandi og henni lýkur 30. janúar 2011. Sýningarstjóri er Árdís Olgeirsdóttir.