frétt
Samtal við Gunnar Magnússon hönnuð
Næstkomandi sunnudag ræðir Harpa Þórsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands við hönnuðinn Gunnar Magnússon í tengslum við sýninguna Í barnastærðum í Hafnarborg. Gunnar Magnússon er einn af afkastamestu húsgagnahönnuðum landsins og hafa fjölmargir hlutir eftir hann farið í almenna framleiðslu. Hann er því á meðal þeirra manna sem mótað hafa umhverfi okkar á síðustu áratugum. Gunnar á hluti á sýningunni sem hann hannaði fyrir sín eigin börn og aldrei fóru í almenna framleiðslu. En mikill hluti þess sem hannað hefur verið hér á landi fyrir börn eru einmitt húsgögn og leikföng sem hönnuðir, arkitektar og listamenn hafa unnið fyrir sín eigin börn. Gunnar ræðir feril sinn og íslenska húsgagnahönnun á síðustu áratugum.
Á sýningunni Í barnastærðum er bæði íslensk og alþjóðleg hönnun sýnd frá tuttugustu öld til okkar daga sem gefur heillandi innsýn inn í heim hönnunar fyrir börn. Sýningargestir á öllum aldri kynnast leikföngum og húsgögnum sem eru sérstaklega gerð fyrir börn og sækja innblástur í leiki þeirra og hugmyndaheim. Þá eru rými í safninu sérstaklega tileinkuð leikjum þar sem hægt er að dansa, leika sér á kassabílum, búa til hluti í opinni listsmiðju og renna sér á rennibraut. Sýningarstjóri er Tinna Gunnarsdóttir vöruhönnuður. Sýningin er unnin í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands sem leggur til marga sýningargripi og faglegan stuðning. Sýningin nýtur stuðning Safnasjóðs, menntamálaráðuneytis, verslunarinnar Epal og Pennans og stendur til 2. maí 2010.