30. mars 2010

Framkvæmdir hafnar á Garðatorgi

Í sumar mun Hönnunarsafn Íslands opna í endurbættu húsnæði að Garðatorgi 1 og halda framvegis reglubundnar sýningar á íslenskri og erlendri hönnun. Framkvæmdir við endurbæturnar eru hafnar, en arkitektastofan Kanon sér um teikningu og hönnun á húsnæðinu fyrir Hönnunarsafnið. Á myndunum má sjá þær breytingar sem húsið hefur tekið en bráðlega mun útbyggingin að framanverðu hverfa þar sem anddyri safnsins verður. Sýningarsvæði safnsins verður á efri hæð hússins og er það í fyrsta sinni, í tíu ára sögu safnsins sem það fær svo gott rými til sýningahalds en sýningarsvæðið eru tæpir 400 m2.



Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi