20. mars 2010

Spjall við frumkvöðla í íslenskri húsgagnahönnun á Höfðatorgi

Á sunnudaginn kemur, 21. mars kl. 16, mun Harpa Þórsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands spjalla við þá frumkvöðla íslenskrar húsgagnahönnunar sem eiga hluti á sýningunni Reykjavík Rewind sem nú stendur yfir á Hönnunarmars á Höfðatúni 2, Höfðatorgi.  Sýningin er samstarfsverkefni Listaháskólans, Háskólans í Reykjavík, Félags húsgagna- og innanhússarkitekta og Hönnunarsafns Íslands.
Sýningin er afrakstur vinnu nemendanna með nokkrum af frumkvöðlum íslenskrar húsgagnahönnunar eða afkomendum þeirra sem nú eru látnir. Hönnuðurnir voru beðnir um að velja einn hlut eftir sig á sýninguna og segja frá honum með nokkrum orðum. Sunnudagurinn er síðasti sýningardagur sýningarinnar.
Þessir húsgagnahönnuðir eiga verk á sýningunni: Gunnar H. Guðmundsson, Gunnar Magnússon, Halldór Hjálmarsson, Hjalti Geir Kristjánsson, Jón Ólafsson, Pétur B. Lúthersson, Stefán Snæbjörnsson, Sveinn Kjarval og Þorkell G. Guðmundsson.

Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi