frétt
Reykjavík Rewind. Húsgagnasýning á Höfðatorgi 18. - 21.03
Verk frumkvöðla á sviði íslenskrar hönnunar verða á sýningu á Höfðatorgi.
Hópur nemenda við LHÍ fékk frumkvöðla á sviði íslenskrar hönnunar, þá Gunnar Magnússon, Pétur B. Lúthersson, Hjalta Geir Kristjánsson, Jón Ólafsson, Þorkel G. Guðmundsson, Stefán Snæbjörnsson, Örn Þór Halldórsson fyrir hönd Halldórs Hjálmarssonar, Jóhannes S. Kjarval fyrir hönd Sveins Kjarval og þær Hlín og Öldu Gunnarsdætur fyrir hönd Gunnars H. Guðmundssonar til að velja hluti á sýningu sem tilheyra íslenskri hönnunarsögu frá 6. og 7. áratug síðustu aldar. Hverjum hlut fylgir frásögn viðkomandi hönnuða sem og þeirra sem hann hafa notað. Segja má að húsgögn þessi hafi verið góð fjárfesting; þau hafa verið notuð um langt árabil og gjarnan verið látin ganga á milli kynslóða. En hér er enn fremur um að ræða mikilvægan þátt í íslenskri hönnunar- og iðnsögu.
Sýningin er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Félags húsgagna- og innanhúsarkitekta og Hönnunarsafns Íslands.