21. desember 2009

Fyrstu eintökin af afmælisútgáfu Skötunnar afhent


Hönnunarsafn Íslands selur afmælisútgáfu hins þekkta stóls Halldórs Hjálmarssonar húsgagnahönnuðar, Skötuna. Stóllinn var teiknaður fyrir 50 árum og seldist í miklu upplagi á árum áður. Heiti stólsins er vísun í skötulagað form hans og er afmælisútgáfan úr tekki, eik og beyki og fætur úr nikkelhúðuðu járni líkt og frumútgáfa stólsins var. Fimmtíu eintök hafa verið framleidd af hverri viðartegund með nikkelhúðuðu fótunum og eru þau númeruð og sérmerkt sem afmælisútgáfa. Hægt er að senda ósk um að panta stóla á heimasíðu safnsins  og svo er hægt að koma í safnið á skrifstofutíma alla virka daga, frá 9-12 og 13-16. Stóllinn verður til sölu í safnbúð safnsins þegar hún opnar í nýju húsnæði á Garðatorgi á næsta ári. Á myndinni sést fyrsti kaupandi stólsins, Katla Kristvinsdóttir við afmælisútgáfu Skötunnar.
Verð kr. 50 000
Tilboðsverð út janúar 2010:  45 000 kr.
vsk. innifalinn í verði.

Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi