frétt
26. nóvember 2009
Harri Koskinen hlýtur Södebergverðlaunin

Hin virtu verðlaun, Torsten och Wanja Söderbergspris, voru veitt finnska hönnuðinum Harri Koskinen í Gautaborg nú í nóvember. Verðlaunin eru veitt á sviði hönnunar eða listhandverks og er verðlaunaféð, ein milljón sænskar krónur, hæstu peningaverðlaun sem veitt eru einstökum hönnuði eða hönnunarteymi.
Harri Koskinen er fæddur árið 1970 og hefur unnið með fyrirtækjum á borð við Iittala, Arabia, Artek, Genelec og Design House Stockholm. Meðal þekktustu gripa sem Harri hefur hannað er Block Lamp frá 1996, sem má lýsa sem ljósaperu í glerklumpi. Koskinen hefur einnig hannað húsgögn og textílvöru, glervörur, hljómtæki og úr fyrir japanska tískuhúsið Issey Miyake svo fátt eitt sé nefnt.
Söderbergverðlaunahafi síðasta árs var íslenski fatahönnuðurinn Steinunn Sigurðardóttir en hún varð jafnframt fyrsti fatahönnuðurinn sem hlotnaðist þessi heiður. Tveir aðrir Íslendingar hafa hlotið Söderbergverðlaunin, Sigurður Gústafsson arkitekt og húsgagnahönnuður (2003) og Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur og fyrrum forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands ásamt fulltrúum frá hinum Norðurlöndunum fyrir framlag sitt til norrænnar hönnunarsögu með rannsóknum og skrifum (1999).
Dómnefnd verðlaunanna er skipuð fulltrúum frá öllum Norðurlöndunum og Röhsska-safnið í Gautaborg, hönnunarsafn Svía, sér um skipulag og framkvæmd verðlaunanna.
Hér má finna nánari upplýsingar um verðlaunahafa og verðlaunin:
http://www.designmuseum.se/soderbe.htm