frétt
12. október 2009
120 manns komu í leiðsögn
Gríðarlegur fjöldi fólks kom á leiðsögn Arndísar S. Árnadóttur á sunnudaginn um íslenska húsgagnagerð á 20. öld. Fullt var út úr dyrum í anddyri safnsins þegar leiðsögnin hófst og áhugasamir gestir fylgdu Arndísi eftir inn í húsgagnageymslu safnsins sem opin hefur verið almenningi í sumar. Leiðsögnin var haldin á síðasta sýningardegi sumarsýningar safnsins en í safnhúsinu hafa verið til sýnis ólíkir gripir úr safneign eftir íslenska hönnuði sem varpa ljósi á söfnunarsvið safnsins. Safnið safnar húsgögnum, prentgripum, textíl, gull- og silfursmíði, leir- og glermunum svo það helsta sé talið. Arndís er hönnunarsagnfræðingur að mennt og hefur rannsóknaraðstöðu í safninu en hún leggur nú lokahönd á doktorsritgerð um þann hluta hönnunarsögunnar sem snýr að híbýlaháttum Íslendinga frá 1907-1970. Greinilegt var á fólki að það þyrstir í fróðleik um íslensk húsgögn og hefur húsgagnageymslan verið vinsæl í sumar hjá gestum safnsins. Töluvert berst af fyrirspurnum til safnsins um húsgögn þar sem fólk vill átta sig á aldri þeirra og sögu en nánast öll safneign safnsins samanstendur af gjöfum frá einstaklingum og stofnunum. Safnið er nú lokað almenningi en unnið er að flutningi þess í endurgert húsnæði á Garðatorgi á næstu mánuðum.