frétt
Leynast íslensk húsgögn í geymslunni þinni?
Leynast íslensk húsgögn í geymslunni þinni?
Íslensk húsgagnaframleiðsla stóð með miklum blóma á tímabilinu 1950-1970 og víða leynast enn húsgögn frá þeim tíma á íslenskum heimilum og stofnunum. Í leiðsögn um geymslusýningu Hönnunarsafnsins mun Arndís S. Árnadóttir hönnunarsagnfræðingur skyggnast um og greina frá helstu áföngum í sögu íslenskrar húsgagnasmíði og hönnunar á síðustu öld og tengja við gripi safnsins.
Arndís lauk MA prófi í hönnunarsögu frá De Montfort háskólanum í Bretlandi með áherslu á húsgögn og innréttingar á tímabilinu 1930-1945 í norrænu og íslensku samhengi. Hún stundar nú doktorsnám í sagnfræði við Háskóla Íslands og rannsakar nútíma híbýlahætti og hönnun á Íslandi á tímabilinu 1907-1970.
Hönnunarsafn Íslands, Lyngási 7, 210 Garðabær, sími 512 1526, opið fim. – sun. kl. 13-17. Aðgangur ókeypis