frétt
Námsstefna um leik- og leikfangagerð
Hönnunarsafn Íslands kemur að skipulagi námsstefnu um leik- og leikfangagerð í samvinnu við lista- og menningarmiðstöðina Hafnarborg í Hafnarfirði og skólaskrifstofur Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Kennurum í skapandi greinum og nýsköpun á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi á höfuðborgarsvæðinu er boðið að sækja stefnuna sem stendur yfir föstudaginn 18. september næstkomandi, í húsi gamla Hagkaups við Garðatorg en safnið mun flytja í hluta þess húsnæðis um næstu áramót. Meginþema námsstefnunnar er endurnotkun efnis með það í huga að skapa úr því leikföng.
Fyrirlesari á námsstefnunni er prófessor Sudarshan Khanna frá Indlandi en hann er einn helsti sérfræðingur Indlands um alþýðuleikföng og hefur hann unnið ötullega að varðveislu þessa arfs. Hann hefur starfað sem ráðgjafi um hönnun og skrifað bækur um leikföng, svo sem Toys and Tales: With Everyday Materials (2003). Prófessor Khanna var yfirmaður Toy Centre deildar Þjóðhönnunarstofnunar Indlands (National Institute of Design, NID, Ahmedabad) og aðalhönnuður stofnunarinnar ásamt því að sitja í stjórn mennta- og rannsóknadeildar hennar. Árið 2002 kom hann á fót prógrammi á háskólastigi við stofnunina þar sem unnið er að hönnun leikfanga og leikja (Toy & Game design). Sudarshan Khanna var heiðraður árið 1995 fyrir lífsstarf sitt (Life-time Award) við að efla og auka þekkingu á hönnunarfræðum tengdum leikjum barna. Hann var forseti ITRA (International Toy Research Association) og stofnandi og forseti alþjóðlegu ráðstefnunnar International vision-action Forum on Toys for Tomorrow. Stuttar heimildarmyndir hafa verið gerðar um störf Sudarshan Khanna og hefur hann haldið námsstefnur um hönnun og leikfangagerð á Indlandi og víða um heim á síðustu árum.
Fullmannað er á námsstefnuna, 180 kennarar munu hlusta á fyrirlestur Khanna og að honum loknum geta kennararnir unnið út frá forskrift Khanna. Styrktaraðilar hafa gert heimsókn Khanna mögulega og býðst þátttakendum að sitja námsstefnuna þeim að kostnaðarlausu.
Sjá hér um námsstefnuna.