frétt
FLORA ISLANDICA FÆRÐ HÖNNUNARSAFNI ÍSLANDS AÐ GJÖF
Fulltrúar frá útgáfufyrirtækinu Crymogea, Kristján B. Jónasson bókaútgefandi og Helga D. Björgvinsdóttir færðu Hönnunarsafni Íslands bókina FLora Islandica að gjöf þann 13. maí síðastliðinn. Bókin kom út í fyrra og hefur algjöra sérstöðu meðal bóka sem hafa verið gefnar út hér á landi á síðustu árum. Í henni eru teikningar Eggerts Péturssonar listamanns af íslenskum háplöntum sem hann vann fyrir handbók Ágústs H. Bjarnasonar um íslenska flóru árin 1982-1983. Myndirnar í Floru Islandicu eru í raunstærð og ber bókin merki metnaðarfullrar sýnar útgefandans á útgáfu fagurbóka.
Hönnunarsafn Íslands fagnar þeim velvilja sem safninu er sýndur með afhendingu bókarinnar sem er tölusett eintak númer 190 af 500. Hér er um ákaflega vandaða grafíska hönnun að ræða sem var í höndum grafísku hönnuðanna Snæfríðar Þorsteins og Hildigunnar Gunnarsdóttur. Þær Snæfríð og Hildigunnur hlutu verðlaun FÍT 2009, í flokki grafískrar hönnunar fyrir prentmiðla fyrir Floru Islandicu. Bókin er fyrsta bókverkið sem safnið eignast en Hönnunarsafn Íslands safnar grafískri hönnun frá aldamótum 1900 til samtíma. Flora Islandica verður meðal íslenskra hönnunarmuna sem verða á sumarsýningu safnsins í safnhúsinu að Lyngási 7 í Garðabæ sem opnar fyrir miðjan júní.
Snæfríð Þorsteins nam hönnun við Polycréa í París 1990-1991 og við École Supérieure de Design Industriel í París 1991-1994. Hildigunnur Gunnarsdóttir útskrifaðist frá Myndlista og handíðaskóla Íslands 1981 og árið 1990 lauk hún námi við Hogeschool voor de Kunsten, Arnhem, Hollandi (ArtEZ Academie Arnhem). Frá árinu 2000 hafa Snæfríð og Hildigunnur rekið sameiginlega hönnunarstofu í Reykjavík. Þær hafa unnið til margvíslegra verðlauna og viðurkenninga, nú síðast fyrir grafíska hönnuna Flora Islandica eins og fyrr er getið.