05. maí 2009

Handprjónaðar ullarflíkur eftir Huldu Jósefsdóttur í Hönnunarsafn

Hulda Jósefsdóttir listhönnuður færði Hönnunarsafni Íslands veglega gjöf á dögunum. Um var að ræða handprjónaðar flíkur hannaðar af Huldu sem sýna þversnið af sköpunarverki hennar en flíkurnar sem Hulda gaf safninu voru til sýnis á 35 ára afmælissýningu Textílfélags Íslands, Þverskurður í Gerðarsafni fyrr á árinu. Að auki færði hún safninu prufur sem sýna æði fjölbreyttar prjónaaðferðir sem Hulda er kunn fyrir.

Ullarflíkur Huldu voru vinsælar á áttunda og níunda áratug 20. aldar en Hulda notaði Álafosslopann í íslensku sauðalitunum og skapaði fatnað með prjónaaðferðum þar sem hún lagði mikið upp úr áferð með þeirri gæðaull sem hún notaði í hönnun sína. Litasamsetningin er eitt höfundareinkenna Huldu og sýnir hún með flíkum sínum á hversu fjölbreyttan hátt má nota og blanda sauðalitina.

Hulda hefur látið sig íslensku ullina og handprjónið varða og skrifað greinar, haldið sýningar og sótt ráðstefnur víða um lönd um þetta efni. Hún rak til skamms tíma sýningarsal í gamla steinbænum Stöðlakoti í Reykjavík þar sem margar listhönnunar- og handverkssýningar hafa verið haldnar.

Hulda er fædd í Reykjavík árið 1930. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands frá 1949-1951, við Håndarbejdets Fremme í Kaupmannahöfn frá 1966-1967 og við Kunsthandverkskolen í Bergen 1968-1969. Í upphafi ferils síns, á sjötta áratugnum, starfaði hún sem prjónahönnuður og verkstjóri hjá tískuhúsinu Feldi h.f. við Laugaveg 116 í Reykjavík en fór svo að sinna eigin hönnun Hún hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér heima og utan landsins.


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi