frétt
OPNAR GEYMSLUR
Fjöldi fólks lagði leið sína um helgina þegar safnið opnaði geymslur sínar fyrir almenningi. Gengið var um eina af húsgagnageymslum safnsins og sagt frá því sem fyrir augu bar. Í miðrými safnsins gat að líta húsgögn eftir Svein Kjarval ásamt nokkru úrvali af leirmunum úr Funa og Glit sem safnið á. Í anddyri safnsins var búið að koma fyrir hönnun yngra fólks sem framleitt er af leiðandi fyrirtækjum á sínu sviði, m.a. Hekla stálhnífapör eftir Dögg Guðmundsdóttur sem framleidd eru af hinu þekkta franska fyrirtæki Christofle og Puma skór, skreyttir af grafíska hönnuðinum Hjalta Karlssyni.
Heimsóknirnar mæltust vel fyrir og greinilegt er að Íslendingar hafa mikinn áhuga á að kynna sér hönnunarsögu þjóðarinnar.
Unnið er að því að opna safnið almenningi með reglulegum opnunartíma og er stefnt á að það verði núna í sumar. Hafi hópar áhuga á að skoða safneign Hönnunarsafnsins fyrir þann tíma er bent á að hafa samband við forstöðumann safnsins.