30. mars 2009

Erindi um húsgögn Sveins Kjarval

Síðastliðinn laugardag á HönnunarMars hélt Arndís S. Árnadóttir erindi um húsgögn Sveins Kjarvals í Hönnunarsafninu og tengdi þau við samtímaþróun í húsgagnasögu nágrannalandanna.

Arndís lauk mastersprófi í hönnunarsögu (Design History) frá DeMontfort háskólanum í Bretlandi árið 1997 og stundar nú doktorsnám í sagnfræði við HÍ. Rannsóknarefni hennar er mótun nútímaheimilisins á Íslandi frá 1920-1970 þar sem áhrif fyrirmynda og tengsl handverks og hönnunar við húsgagnaframleiðslu eru meðal annars skoðuð. Árndís var um árabil forstöðumaður Bókasafns Myndlista- og handíðaskóla Íslands og síðar Bókasafns Listaháskóla Íslands.


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi