21. mars 2009

ERINDI UM SVEIN KJARVAL - Hönnunarmars

Laugardaginn 28. mars kl. 15 mun Arndís S. Árnadóttir listfræðingur flytja erindi og segja frá húsgögnum Sveins Kjarvals (1919-1981) í safnhúsi Hönnunarsafsins.
Sveinn hefði orðið níræður á þessu ári og er kærkomið að minnast við þau tímamót þessa afkastamikla húsgagnahönnuðar. Sveinn Kjarval teiknaði bæði innréttingar og stök húsgögn. Í erindinu verður skoðað hvað húsgögn hans segja okkur um nútímalega húsgagnagerð, tíðarandann og hvernig samstarfi hönnuða við húsgagnaframleiðendur var háttað á þessum tíma. Í miðrými safnhússins getur að líta nokkur húsgögn Sveins í eigu safnsins.

 


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi