27. febrúar 2009

Stofuhúsgögn úr smiðju bræðranna Jóns og Guðmundar Benediktssona

Nýlega barst Hönnunarsafninu að gjöf stofuhúsgögn sem smíðuð voru á húsgagnaverkstæði bræðranna Jóns og Guðmundar Benediktssona á Laufásvegi 18 a á sjötta áratug síðustu aldar.

Myndin sýnir einn þeirra, armstól úr eik. Slíkir stólar voru í framleiðslu á sjötta áratugnum og eru enn víða varðveittir á heimilum á Íslandi.

Gjöfin samanstendur af borðstofuborði með fjórum stólum, sófabekk, sófaborði, armstól og hægindastól með háu baki. Að sófaborðinu undanteknu, sem Helgi Jónsson vélsmiður teiknaði og smíðaði, eru húsgögnin hugmyndasmíð þeirra bræðra með sterkri skírskotun í samtíma danska húsagagnaframleiðslu.

Bræðurnir Jón Benediktsson (1916-2003) og Guðmundur Benediktsson (1920-2000) voru báðir lærðir húsgagnasmiðir en stunduðu einnig nám við Myndlistaskólann í Reykjavík og störfuðu sem myndlistarmenn. Á fámennu verkstæði þeirra voru aðallega framleidd nútímaleg heimilishúsgögn úr viði og járni. Eftir þá bræður liggja líka myndlistarverk eins og skúlptúrar úr eir og bronsi. Myndlistarverk þeirra eru vel útfærð og fáguð og bera vott um góða efnisþekkingu.

Meirihuti þeirra muna sem Hönnunarsafninu berast eru gjafir.


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi