18. febrúar 2009

Katrín Ólína Pétursdóttir hlýtur verðlaun í Stokkhólmi


Katrín Ólína Pétursdóttir hlaut nýverið Forum Aid verðlaunin í Stokkhólmi fyrir Cristal Bar í Hong Kong. Verðlaunin voru veitt í flokki innanhússhönnunar, en verkefninu er hægt að lýsa sem þrívíðri hönnun á tvívíðum fleti í þrívíðu rúmi. Myndirnar tala sínu máli en hönnun Katrínar er fjölbreytt. Hér á landi er hún  hvað þekktust fyrir Tree Coat Hangers, fatahengi í laginu eins og tré sem hún hannaði með Michael Young. Hönnunarsafn Íslands á tvo gripi eftir Katrínu, snjóbretti og hjálm.


Sjá nánari umfjöllun á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar:
http://www.honnunarmidstod.is/Frettirogvidburdir/Lesafrett/1317


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi