17. febrúar 2009

Félagsmenn í félagi húsgagna- og innanhússhönnuða (FHI) heimsóttu geymslur Hönnunarsafnsins

Félagsmenn í félagi húsgagna- og innanhússhönnuða (FHI) heimsóttu Hönnunarsafnið í síðustu viku. Fjöldi félagsmanna nýtti sér tækifærið sem bauðst til að ganga um safnhúsið að Lyngási og skoða safneignina sem þar er. Forstöðumaður safnsins skýrði frá helstu markmiðum safnsins og verkefnum og voru félagsmenn áhugasamir um margt sem fyrir augu bar. Á eftir var svo boðið upp kaffi og veitingar.

Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi