10. febrúar 2009

Nemendur Sjálandsskóla skoða stóla

Á dögunum kom áttundi bekkur Sjálandsskóla í heimsókn í geymslur Hönnunarsafnsins með Ernu Sif Auðunsdóttur kennara sínum , þar fékk hópurinn að skoða fjölbreytt úrval íslenskra stóla af öllum stærðum og gerðum frá nýliðinni öld, ráðherrastól Guðjóns Samúelssonar sem var sérhannaður fyrir Alþingi úr eik og leðri og útskorin af Ríkharði Jónssyni. Stól eftir Pálmar Kristmundsson arkitekt frá 1991 sem hannaður er úr stáli og stálvír og er einskonar skúlptúr þar sem unnið er með form, burð og rými.

Nemendurnir fengu líka fræðlu um þá íslensku hönnuði sem hannað hafa fyrir IKEA. Siggu Heimis og Hlyn Vagn Atlason.
Hópurinn er að vinna að því að hanna tómstundasvæði í skólanum og nota þau m.a IKEA Sims leikinn til að teikna og leika sér með rými.


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi