27. janúar 2009

Leiðsögn um sýninguna á íslensku jólaskeiðinni

Sunnudaginn 1. febrúar næstkomandi verður Harpa Þórsdóttir forstöðumaður safnsins með stutta leiðsögn um íslensku jólaskeiðina. Leiðsögnin hefst kl. 14:30. Harpa mun taka fyrir nokkrar skeiðar sem á sýningunni eru, útskýra myndmál þeirra og helstu einkenni. Hún mun einnig segja frá jólaskeiðum annarra landa og velta upp ýmsu markverðu og öðru sögulegu sem tengist þessum söfnunagrip.

Sýningunni lýkur sama dag, en hún hefur staðið yfir í sýningasal Hönnunarsafns Íslands frá því um miðjan nóvember. Fjöldi gesta hefur skoðað sýninguna. , Sýningarskrá sem gefin hefur verið út í tilefni sýningarinnar fæst á sýningunni. Ókeypis aðgangur

Næsta sýning er fyrirhuguð að opni um miðjan maí. Nánari upplýsingar eru væntanlegar á heimasíðu safnsins í lok janúar.


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi