frétt
Sýningarlok nálgast á íslensku Jólaskeiðinni
Sunnudaginn 1. febrúar lýkur sýningu á íslensku jólaskeiðinni í sýningasal safnsins við Garðatorg. Sýningin hefur hlotið góðar viðtökur og dregið að sér fjölda sýningargesta. Harpa Þórsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands fylgdi sýningunni vel úr hlaði með erindi um þróun og sögu jólaskeiðarinnar og hafa hópar fengið leiðsögn um sýninguna.
Hönnunarsafnið gaf út tuttugu og tveggja síðna skrá í tilefni sýningarinnar sem er seld á tilboðsverði á meðan sýning stendur. Skráin er mikilvæg heimild um sextíu ára hönnun og smíði skeiðarinnar og þar koma m.a fram nöfn flestra þeirra sem komu að hönnun skeiðanna
Sýningasalur Hönnunarsafns Íslands er opin fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga frá klukkan 14 – 18. Sýningin er sett upp á þann hátt að yngsta kynslóðin getur notið hennar til jafns við fullorðna. Hægt er að panta leiðsögn fyrir hópa utan opnunartíma.