frétt
11. desember 2008
Leikskólinn Kirkjuból heimsótti safnið
Börnin í leikskólanum Kirkjubóli heimsóttu jólasýningu safnsins á Garðatorgi en á sýningunni eru íslenskar jólaskeiðar. Eins og sést á myndinni voru börnin áhugasöm um öll þau tákn og sögur sem hver skeið segir í myndum. Sköpunargleðina vantaði ekki og í lokin teiknuðu þau sína eigin hugmynd af skeið og sungu jólalög. Við þökkum Grænahóp á Kirkjubóli kærlega fyrir komuna.