frétt
Villa-traktor gefinn Hönnunarsafni Íslands
Í tilefni þess að Manfreð Vilhjálmsson arkitekt varð áttræður á árinu ákvað Eyjólfur Pálsson í Epal ásamt nokkrum vinum Manfreðs að láta smíða nokkra tölusetta leikfangatraktora sem Manfreð hannaði og smíðaði árið 1962.
Traktorinn var leikfang úr krossvið sem Manfreð smíðaði handa Vilhjálmi syni sínum. Hönnunarsafnið fékk traktor númer tvö, Manfreð fékk traktor númer eitt og barnabarn Eyjólfs, nýorðinn ellefu ára fékk traktor númer 11. Áttatíu slík leikföng hafa nú verið smíðuð, það var völundasmiður á Akureyri sem smíðaði hann eftir teikningum Manfreðs. Harpa Þórsdóttir tók við traktornum fyrir hönd Hönnunarsafnsins við athöfn í versluninni Epal sem haldin var til heiðurs Manfreðs.