frétt
JÓLASKEIÐIN
Jólaskeiðin á orðið langa sögu. Hún er söfnunargripur sem enn er verið að safna á íslenskum heimilum. Saga hennar hófst árið 1946 þegar Guðlaugur A. Magnússon gullsmiður fékk þá hugmynd að láta hann jólaskeið og selja í verslun sinni. Næsta skeið var smíðuð árið 1948 og síðan þá hefur ein jólaskeið komið út á hverju ári í nafni verslunar Guðlaugs A. Magnússonar. Fleiri hafa smíðað og látið smíða jólaskeiðar, Magnús E. Baldvinsson úrsmiður lét hanna og smíða jólaskeiðar sem voru kaffiskeiðar, teskeiðar, sem komu út á hverju ári í 12 ár og Gull- og Silfursmiðjan Erna, sem var fyrirtæki í eigu Guðlaugs A. Magnússonar og afkomendur hans reka í dag, hóf smíði eigin skeiðar árið 2003 og kemur ný skeið á hverju ári. Jólasveinaskeiðar hafa einnig verið smíðaðar og þar eru að sjálfsögðu á ferðinni gömlu íslensku jólasveinarnir.
Sýningunni er einnig ætlað að varpa ljósi á smíðisvinnuna og það ferli sem hefst eftir að hugmyndin fæðist. Sýningin er sett upp á þann hátt að yngsta kynslóðin getur notið hennar til jafns við fullorðna.
Í tilefni sýningarinnar hefur Hönnunarsafn Íslands gefið út 22 síðna sýningarskrá þar sem rakin er saga jólaskeiðarinnar og birt skrá yfir þær frá upphafi.
Nánari upplýsingar um sýninguna veitir Harpa Þórsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands í síma: 617 1525 (harpa@honnunarsafn.is)
Opnunartími safnsins er sem hér segir: Fim. Fös. Lau. og Sun. kl. 14-18
Sýningartími: 15.11.2008 – 1.2.2009
Hægt er að panta leiðsögn fyrir hópa utan opnunartíma (harpa@honnunarsafn.is)
Upplýsingar um fræðsludagskrá er að finna á heimasíðu safnsins: www.honnunarsafn.is
Aðgangur ókeypis
Viðtal við Hörpu Þórsdóttur forstöðumann Hönnunarsafns Íslands í tilefni sýningarinnar má lesa í Morgunblaðinu 17. nóvember 2008 á síðu 34 undir menning og listir.
Nánari í fjölmiðlum sjá eftirfarandi vefslóðir: