frétt
HönnunarMars í Hönnunarsafninu
Hönnunarsafn Íslands sýnir verk Hrafnhildar Arnardóttur eða Shoplifter á HönnunarMars, sem hefst fimmtudaginn 24. mars næstkomandi. Hrafnhildur er myndlistarmaður og hefur búið í New York síðustu 17 árin þar sem hún hefur skapað sér nafn fyrir innsetningar sínar úr hári og ýmsa fylgihluti og fatnað sem hún hefur hannað í samstarfi við listamenn, hönnuði og stílista. Hrafnhildur hefur skapað sér mikla sérstöðu með efnisnotkun sinni og sjálf segir hún að listheimurinn hafi átt erfitt með að skilgreina á hvaða svæði hún vinni, þar sem verkefni hennar tengjast oft á tíðum tískuheiminum og birtast á síðum tískublaða. Hrafnhildi hefur orðið tíðrætt um að hún vinni á gráu svæði milli listsköpunar og hönnunar en nýlega var hún heiðruð fyrir verk sín þegar hún hlaut hin virtu norrænu textílverðlaun sem verða veitt í Svíþjóð síðar á þessu ári. Sýningin Á Gráu Svæði er framlag Hönnunarsafnins á HönnunarMars 2011 og verður opnuð formlega miðvikudaginn 23. mars og stendur til 29. maí næstkomandi.